JÓN AGNAR


Um mig:
Ég heiti Jón Agnar og ég fæddist þann dýrðardag Miðvikudaginn 12.Apríl 2006 kl 17:05. Þegar ég fæddist þá var ég með rautt hár eins og pabbi minn og blá augu eins og mamma. Ég fæddist á Sjúkrahúsinu á Akranesi og var ég 3635gr (14,5 merkur) og 52 cm og var það hún Lóa Kristinsdóttir sem tók á móti mér og er hún algert æði;)
Mamma mín heitir Rut (84) og er frá Stykkishólmi, pabbi minn heitir Tóti (79) og er frá Húnaþingi vestra. Pabbi býr á Hvanneyri og ég fer reglulega til hans en ég bý með mömmu og Herði í Reykjavik. Ég á stórann bróðir sem heitir Ingi Þór og er 12 ára gamall (97) og ég lít rosalega mikið upp til hans. Ingi Þór býr í Borgarnesi með mömmu sinni. Ég er að verða stóribróðir í Október en þá eignast mamma lítið barn:) Þannig þið sjáið það að ég er rosalega ríkur strákur:)







HRÚTURINN
21. mars – 19. apríl

Rambó leikfélaganna er mættur á svæðið. Með barn í hrútsmerkinu mega foreldrar búast við miklu fjöri á heimilinu því það ríkir engin lognmolla í kringum hrútinn. Ekki ætlast til þess að barnið sitji kyrrt með hringlu. Þetta er barnið sem veifar þér ofan af hæsta tré, alls óhrætt við að taka áhættu. Hrútsbarnið er allt annað en hljóðlátt og lætur oft vel í sér heyra. Sem eldsmerki er hrúturinn orkumikill og hefur ávallt eitthvað fyrir stafni. Verður erfitt að ráða við litla hrúta? Það er líklegra en ekki. Foreldrar ættu eins fljótt og hægt er að kenna þessu barni að vinna með öðrum börnum. Að deila einhverju með öðrum er eitthvað sem kemur ekki af sjálfu sér – það þarf að kenna litlum hrútum. Þeir eru einnig ákaflega tapsárir. Þeir þrá athygli og eiga mjög auðvelt með að verða sér úti um hana með ýmsum aðferðum. Hrútar eru fæddir leiðtogar og ef þú ætlar að hafa eitthvað að segja er betra að láta þá vita með afgerandi hætti hver er við stjórnvölinn því annars er eins líklegt að stjórnin verði tekin úr þínum höndum. Lítill hrútur er oft eins og ótemja, lítið gefinn fyrir að hlýða reglum og vera þægur nema þegar honum hentar. Vegna þess hve hann er orkumikill er nauðsynlegt að hann fái mikla hreyfingu. Hann verður að fá að hlaupa um og róta til heima hjá sér. Ef hann fær ekki útrás fyrir orkuna verður hann pirraður og ergilegur. Honum líður best í lifandi og fjörugu umhverfi. Þar sem fljótfærni og óþolinmæði eru meðal veikleika hans þarf að kenna honum að hægja á sér og telja upp að tíu áður en hann rýkur af stað. Einnig þarf að venja hann á að ljúka því sem hann byrjar á.






Vinir og ættingjar



Ingi Þór Stóri bróðir


Ófætt systkini mitt



Guðrún frænka


Bjarney Birta frænka


Sif frænka


Mamma


Ágúst Davíð Steinarsson


Lilja Dögg Einarsdóttir


Hjálmar Ingi Egilsson Hjaltalín


Valur Snær Tryggvason


Davíð Einar Davíðsson


Aníta Sól Gunnarsdóttir


Gabríel Ísak Hjaltason


Jóel Helgi Reynisson


Júlíus Már Halldórsson


Kristín Mjöll Guðlaugardóttir


börnfædd árið 2006


börn fædd í apríl 2006








Þú ert ljósið sem skærasta skín í okkar lífi,elsku drengurinn okkar og við þökkum fyrir þig á hverjum degi og vona að lengi enn við njóti þín megi. Þú ert lítill engill sem okkur var sendur svo fullkomin að okkur fallast hendur og við skulum gera okkar besta til að sýna þér að alltaf þú eigir vísan stað í hjarta okkar Og hjartað okkar slær hraðar í okkur þakka þér faðir sem allt sér af lotnigu. Við fyllumst er við lítum hann á drenginn sem hann lét okkur fá. Og alltaf er við lítum á þig, svo sætur og fínn þá getum við alltaf undrast, að þú sért sonur okkar og þú mátt vita, er vökna tárin kinn og alltaf sé opin faðmur okkar. Við elskum þig Jón Agnar. Þínir foreldrar ***



Þú ert gestur nr. 50448